Gervigreind og íslenskur arfur

Gefðu barninu þínu aðalhlutverkið

býr til persónulegar barnabækur þar sem barnið þitt er hetjan. Skemmtileg leið til að efla lestraráhuga og lesskilning í gegnum leik og sköpun.

Lesa meira
Opinn barnabók með töfrum

Lestrarkennsla & Vísindi

Byggt á Science of Reading. Styður við hljóðaaðferðina og eflir orðaforða og lesskilning.

Barnið ræður ferðinni

Barnið velur þemað, lýsir eigin hugmynd og verður hetjan í sinni sögu. Efnistök sem kveikja áhuga.

Töfraheimar

Fallegar myndir skapaðar með gervigreind sem grípa augað og styðja við söguna.

Öryggi og einkalíf

Sögur eru sjálfgefið einkamál. Þú stjórnar deilingu og engar persónuupplýsingar eru nýttar umfram söguna.

Byggt á rannsóknum

Sögur sem styðja við þroska barnsins

Söguvinur er skemmtileg viðbót við kvöldlesturinn — ekki í stað heimalesturs, heldur til að kveikja áhuga og efla samtal. Hver saga er hönnuð til að styðja við ákveðið þroskasvið, byggt á Science of Reading og aðferðum gagnvirks lestrar.

Þroskaþema í hverri sögu

Sjálfstraust, samkennd, þrautseigja, tilfinningagreind og fleira. Hvert þema er tengt við ákveðið þroskamarkmið sem er vefið náttúrulega inn í söguna.

Spurningar til samræðna

Innbyggðar spurningar hvetja foreldra og börn til samræðna um söguna. Barnið spáir, ályktar og eflir orðaforðann í gegnum leik og samtal.

Aldursmiðað efni

Málfar, setningagerð og sögubygging aðlöguð aldri barnsins. Byggt á Science of Reading og aldursviðmiðum í lesfimi.

Eftir hverja sögu fá foreldrar ábendingar um hvernig þau geta styrkt þroskaþema sögunnar í daglegu lífi.

Svona virkar það

Þrjú einföld skref að nýju ævintýri

1

Veldu hetju

Skráðu nafn barnsins og aldur. Þetta mótar erfiðleikastig textans.

2

Barnið velur ævintýrið

Veldu þema eða lýstu þinni eigin hugmynd. Saga um dreka sem getur ekki eldað? Allt er hægt!

3

Sagan verður til

Söguvinur skrifar bókina og teiknar myndirnar. (Myndskreytt PDF gerð tekur 2-4 mínútur).

Verðskrá & Inneign

Greiðslur virka í gegnum inneign (e. credits). Þegar þú kaupir sögu-pakka færðu inneign inn á aðganginn þinn. Ein saga kostar eina inneign og inneignin gildir að eilífu! Skapaðu söguna þegar ykkur hentar.

Fyrsta sagan er frí!

Búðu til aðgang í dag og fáðu eina ókeypis sögumynt til að prófa kerfið. Ekkert kreditkort nauðsynlegt.

Er sögumyntin búin?

Greiðslugáttin okkar er í lokafrágangi. Skráðu þig á biðlista hér að neðan og við látum þig vita um leið og hægt verður að kaupa meiri sögumynt.
Athugið: Hver saga er sérhönnuð frá grunni. Myndskreytt PDF gerð tekur 2-4 mínútur.

Litli pakkinn

1.490 kr
Fyrir þá sem vilja prófa sig áfram.
496 kr / sögu
  • 3 Sögur
  • Myndir og texti
Vinsælast

Ævintýrapakkinn

2.590 kr
Nóg af sögum fyrir vikuna.
518 kr / sögu
  • 5 Sögur
  • Myndir og texti
  • PDF útgáfa

Söguklúbburinn

1.990 kr / mán
Fyrir sanna söguvini.
398 kr / sögu
  • 5 Sögur á mánuði
  • 12% afsláttur
  • Ótakmarkað geymslupláss

Kvöldlestur sem kveikir samtal

Söguvinur kemur ekki í stað barnabóka — hann bætir við þær. Þegar barnið velur þemað, lýsir eigin hugmynd og verður hetjan, skapast efnistök sem kveikja áhuga og gera lesturinn persónulegan. Innbyggðar spurningar hvetja til samræðna og styðja við málþroska á íslenskri tungu.

Lesa meira um hugmyndafræðina →