Skilmálar
Gildir frá 18. febrúar 2026
1. Inngangur
Velkomin í Söguvin. Þjónustan er rekin af Neðri Hóll Hugmyndahúsi ehf. Með því að stofna aðgang og nota vefinn samþykkir þú þessa skilmála í heild sinni. Skilmálarnir gilda um alla notkun á Söguvin, hvort sem um er að ræða ókeypis prufuáskrift eða keypta þjónustu.
2. Þjónustan og Takmarkanir
Söguvinur nýtir nýjustu gervigreindartækni til að búa til persónulegar barnasögur byggðar á inntaki notanda. Við leggjum metnað í gæði og öryggi efnisins en bendum á að gervigreind getur stundum búið til óvæntar eða ónákvæmar niðurstöður. Söguvinur áskilur sér rétt til að gera breytingar á eiginleikum kerfisins án fyrirvara til að bæta þjónustuna.
3. Aðgangur og Öryggi
Stofnun aðgangs krefst gilds netfanga. Notandi ber ábyrgð á því að halda innskráningarupplýsingum sínum leyndum og öruggum. Við hvetjum notendur til að nota örugg lykilorð. Söguvinur ber ekki ábyrgð á tjóni sem hlýst af óviðkomandi aðgangi vegna vanrækslu notanda.
4. Hugverkaréttur og Notkun
Sögurnar sem þú býrð til eru ætlaðar til persónulegra nota. Þér er frjálst að deila þeim með fjölskyldu og vinum. Höfundarréttur að grunnhönnun, vörumerki og hugbúnaði Söguvinar tilheyrir Neðri Hóll Hugmyndahúsi ehf. Þó myndir og texti séu búin til af gervigreind, færð þú afnotarétt af efninu sem þú býrð til í gegnum þína áskrift.
5. Greiðslur, Áskriftir og Uppsögn
Greiðslur fyrir sögumynt (credits) eða áskriftir fara fram í gegnum vottuð og örugg greiðslukerfi (Áskell eða Teya). Áskriftir endurnýjast sjálfkrafa við lok hvers greiðslutímabils nema þeim sé sagt upp áður. Þú getur hvenær sem er sagt upp áskrift inni á „Mínum síðum“ og gildir uppsögnin frá næstu mánaðamótum eða lokum yfirstandandi tímabils. Greiðslur eru almennt óafturkræfar þar sem þjónustan telst afhent um leið og sögumynt er bætt við aðganginn eða áskrift virkjuð.
6. Ábyrgð og Bótaáskilnaður
Söguvinur er afhentur „eins og hann er“ (e. as is). Neðri Hóll Hugmyndahús ehf. ábyrgist ekki 100% uppitíma eða að þjónustan sé algjörlega villulaus. Við berum ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem notandi gæti orðið fyrir vegna notkunar á kerfinu eða ef kerfið liggur niðri.
7. Eyðing aðgangs og gagna
Notandi getur hvenær sem er óskað eftir eyðingu á sínum aðgangi og öllum tengdum gögnum. Við eyðingu aðgangs glatast og allar ónotaðar sögumyntir (credits) og sögur sem vistaðar hafa verið í kerfinu. Söguvinur áskilur sér rétt til að loka aðgangi sé grunur um misnotkun eða brot á skilmálum þessum.
8. Breytingar á Skilmálum
Við gætum uppfært skilmála þessa vegna lagabreytinga eða tækniþróunar. Breytingar taka gildi við birtingu á vefsíðunni. Við mælum með að notendur fari yfir skilmálana reglulega.
Neðri Hóll Hugmyndahús ehf. | Kennitala: 470126-2480 | soguvinur@soguvinur.is
Reykjavík, Ísland